Guideline Costal polaroid grey lens, green mirror

9.990 kr.

Coastal grey eru flott polarized gleraugu frá Guideline með nokkuð breiðri umgjörð. Þau eru hönnuð til nota við ólíkar aðstæður, hvort heldur í veiði eða til daglegra nota. Ramminn er svartur að lit en linsan er grá með og með grænum spegli fyrir svalara útlit.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: 107006 Flokkur:

Coastal Grey eru flott polarized gleraugu frá Guideline með nokkuð breiðri umgjörð. Þau eru hönnuð til nota við ólíkar aðstæður, hvort heldur í veiði eða til daglegra nota. Ramminn er svartur að lit en linsan er grálituð með grænum spegli fyrir svalara útlit. Gleraugun henta í sjónveiði þar sem grái liturinn skapar nátúrulegar aðstæður í umhverfinu og auðveldar veiðimönnum að koma auga á fisk.

Líkt og önnur gleraugu frá Guideline eru þau með UV400 hlífðarhúð sem lokar algjörlega fyrir skaðlega UVA og UVB geisla sólarinnar. Polarized linsur brjóta niður endurkast af yfirborði og draga verulega úr glampa, sem verður til þess að auðveldara er að sjá fisk í vatni. Það getur komið sér vel í tærum ám þar sem góð yfirsýn skiptir öllu máli. Polarized linsur draga einnig úr augnþreytu og auka sjónnákvæmni.

Coastal gleraugunum koma í endingargóðu hulstri með rennilás og þeim fylgir einnig hreinsiklútur.

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top