Search
Close this search box.

NORÐFJARÐARÁ SUMAR 2024

Veiðileyfasalan hafin í Norðfjarðará fyrir sumarið 2024

Erum búin að opna fyrir bókanir í Norðfjarðará sumarið 2024. Nú er um að gera að bóka sem fyrst þar sem mikil eftirspurn er í ánna.Sumarið 2023 var þokkalegt veiðisumar í ánni sem er aðeins 3ja stanga á.Veiðileyfin er hægt að bóka hjá okkur í Veiðiflugunni á [email protected] eða í síma 4741400 og í súnbúðinni á Neskaupstað á [email protected] eða í síma 4771133, greiða verður fyrir leyfin um leið og bókað er ásamt skilagjaldi en skilagjaldið fæst endurgreitt við skil á veiðiskýrslu.

Verðin fyrir sumarið 2024 verða sem hér segir.

15.06 – 08.07             
Heill dagur.         8,900 kr.             
Hálfur dagur.      6,300 kr.

09.07 – 09.09
Heill dagur. 19,800 kr.
Hálfur dagur. 12,200
kr.

10.09 – 20.09             
Heill dagur.          11,400 kr.             
Hálfur dagur.       7,700 kr.

Skilagjald leggst á ofangreind verð að upphæð 1000 kr. á hverja skýrslu og fæst það endurgreitt við skil á veiðiskýrslum í Veiðiflugunni eða Súnbúðinni.
Daglegur veiðitími frá 07 – 13 og 15 – 21,
Kort af ánni má nálgast á þessari slóð.

Hér er hægt að fylgjast með veiðitölum úr Norðfjarðará: https://veidibok.hafro.is/is/veidibok/svaedi-yfirlit/5ea113cf-1fbf-4090-b5fb-802924627c54

Hér er hægt að sjá hvað er laust í ánni hverju sinni ATH að þessi linkur/síða er uppfærð 1 sinni á sólahring og er því ekki 100% örugglega rétt fyrr en búið er að hafa samband við okkur,

https://docs.google.com/spreadsheets/d/17JXJfxqMCyDbFMa0xw1KcnGf7d5BCrLWK_bET1L7bz0/edit?usp=sharing

Shopping Cart
Scroll to Top