Search
Close this search box.

Guideline NGx Sonic zip vöðlur

121.900 kr.

Nýja Alta NGx línan er komin , vara sem er hönnuð með endingu og þægindi að leiðarljósi.

Vörunúmer: 107228 Flokkur:

Alta NGx Sonic Zip vöðlurnar er byggðar með ultrasonic hátíðni suðutækni og eru með yfirburða vatnsheldni og bestu mögulegu öndunina. Þrátt fyrir afar sterkt og endingargott efnisval eru vöðlurnar sveigjanlegar og með framúrskarandi hreyfanleika vegna tengingar milli fram- og afturhluta til að forðast mótsöðu við hreyfingu. Vatnsheldi TIZIP® MasterSeal rennilásinn að framan hefur margsannað sig og Ergo Elevator™ axlaböndin eru klædd með neoprene til að auka enn á þægindi. Sandhlífarnar og sokkarnir eru úr mjög sterku og endingargóðu nylon neoprene. Sokkarnir eru hannaðir með Comfort Plus™ tækni sem aðlagar sig að formi fótsins.

Sniðið er rausnarlegt á réttum stöðum ásamt sérstakri klofbót til að auka enn frekar styrk og hreifanleika. Ergo Elevator™ axlaböndin er teygjanleg og á mjög fljólegan hátt er hægt að breyta vöðlunum í mittisvöðlur, og þar sem þau mæta vöðlunum er litlar tækjastikur sem hægt er að bæta á ýmsum tækjum og tólum.

Efst á vöðlunum er aðgengilegt, innbyggt og stillanlegt teygjuband til að halda hitanum inni. Tveir háttsettir brjóstvasar með gott rými fyrir flugubox og flísfóðraðir hliðarvasar til að ylja sér á höndum sem einnig nýtast sem geymsluvasar. Allir vasarnir eru með YKK Aquaguard® vatnsfráhrindandi rennilásum og Dual Tool Garage™ geymslurnar að framan hafa gott rými fyrir allskyns aukahluti án þess að dingla laust og flækjast fyrir.

Þrjár beltislykkjur halda vöðlubeltinu sem er teygjanlegt en með frábæran stuðning ef þú þarft að hengja eitthvað þyngra um mittið eins og t.d. vaðstaf. Á innaverðum vöðlunum er vasi með vatnsfráhrindandi eiginleika og D-hringur að aftan til að festa háf í.

Stærð

2xl, Extra large, Large, Medium

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top