Guideline Tactial polaroid gul

9.990 kr.

Tactical veiðigleraugun frá Guideline eru með sportlegri umgjörð sem lokar vel á hliðunum, enda er lögun þeirra örlítið bogin. Þau eru tilvalin í veiði, útileguna eða aðra útivist. Koparlinsan er hentug til alhliða nota enda er brúni liturinn ákjósanlegur fyrir notkun í dagsbirtu. Með þessari linsu verða andstæður greinilegri þegar þau eru notuð yfir hádaginn.

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: 107009 Flokkur:

Tactical veiðigleraugun frá Guideline eru með sportlegri umgjörð sem lokar vel á hliðunum, enda er lögun þeirra örlítið bogin. Þau eru tilvalin í veiði, útileguna eða aðra útivist. Gul linsan hentar vel í skýjuðu veðri, eða seinnipart dags þegar sólin er ekki eins hátt uppi. Gleraugun henta því vel til notkunar á Íslandi, þar sem birtustig er sjaldnast í hámarki.

Með gulri linsu virðist allt skýrara og andstæður verða greinilegri. Eins og í öðrum gleraugum frá Guideline er Tactical linsan polarized og lokar 100% á skaðlega UVA og UVB geisla sólarinnar. Gleraugun koma í harðgerðu hulstri ásamt hreinsiklút.

Polarized linsur brjóta niður endurkast af yfirborði og draga verulega úr glampa, sem verður til þess að auðveldara er að sjá fisk í vatni. Það getur komið sér vel í tærum ám þar sem góð yfirsýn skiptir öllu máli. Polarized linsur draga einnig úr augnþreytu og auka sjónnákvæmni.

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top