Search
Close this search box.

Guideline NGx vibram vöðluskór

34.900 kr.

Nýja Alta NGx línan er komin , vara sem er hönnuð með endingu og þægindi að leiðarljósi.

Vörunúmer: 107249 Flokkur:

Nýju Alta NGx vöðluskórnir með Vibram® Idrogrip™ gúmmísólanum eru hannaðir með nýrri sýn á þægindi, stöðugleika og endingu. Stuðningur frá miðjusóla og sterk gerviefni veita góða frammistöu í grófu landslagi og styrkingar á mörgum stöðum veita gott viðnám gegn hvössu grjóti þegar vaðið er.

Alta NGx vöðluskórnir eru frábærir í hversdagsveiðina þar sem ganga þarf lengri vegalengdir meðfram ám. Svæðið yfir miðjan fótinn frá il að rist veitir strax þægilega tilfinningu á meðan allir stuðningsfletir, sem eru úr “closed-cell” efni sem heldur frá sér vatni, halda fótnum í þéttu og þægilegu ástandi. Ytra byrðið er sterkt en samt létt endurunnið Nylon ripstop sem tryggir endingu og léttleika á löngum dögum í veiði. Tá- og hælsvæðið er sérstyrkt og saumurinn er inngreyptur til að forðast slit.

Það eru TPU styrkingar meðfram neðri hlutanum á vöðluskónum og stuðningur frá miðjusóla og sterk gerviefni, veita góðan stuðning og það er hægt að negla þessa skó ef menn vilja. Það er sérstakt efni í Vibram® Idrogrip™gúmmísólanum sem gefur betra grip á blautu og hálu yfirborði. Á sumum veiðisvæðum eru felt sólar bannaðir vegna umhverfissjónarmiða en það er hægt að fá Alta NGx með klassískum felt sóla sem eru yfirleitt algjörlega skotheldir á sleipum steinum ofan í ám og vötnum.

Stærð

42, 43, 44, 45, 46

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top