Guideline Driva vöðlur

84.900 kr.

Driva vöðlurnar frá Guideline sameina mjúkt og endurunnið efni við öfluga vatnsvörn og góða öndun. Þær eru með rúmgóðum vösum. Léttar og þægilegar vöðlur fyrir langa veiðidaga.

- +
Vörunúmer: 110970 Flokkur:

Guideline Driva vöðlur

Driva vöðlurnar frá Guideline eru saumaðar úr slitsterku, endurunnu pólýester efni sem er mjúkt viðkomu, létt og þægilegt, en jafnframt endingargott. Sniðið er vel mótað yfir hné og læri, sem gerir þær sérlega hentugar fyrir þá sem ganga mikið í veiði – jafnvel þegar hlýtt er í veðri.

Driva eru búnar öflugri vatnsvörn (20.000 mm) og góðri öndun, en efnin eru bluesign® vottuð Axlabandakerfið er stillanlegt, teygjanlegt og með nýrri Duraflex® festingu aftan á bak. Mittisbeltið er stíft en teygjanlegt og heldur vel, með lykkjum til að festa aukahluti eins og vaðstaf eða töng.

Að framan eru tveir vatnsfráhrindandi YKK AquaGuard® rennilásvasar með góðu geymsluplássi, og þar fyrir neðan eru opnir vasar til að verma hendur– fullkomnir á köldum veiðidögum.  Á vöðlunum eru tvær Hypalon-festingar fyrir aukahluti, auk innri lóðrétts rennilásvasa með AquaGuard® rennilás og festingarflipa fyrir þurrkun á flugum. Á bakinu er D-lykkja fyrir háf.

Sokkarnir eru úr Comfort Plus™ neoprene og eru hannaðir með nákvæmri mótun fyrir gott aðhald og þægindi. Driva LARGE stærðin fæst með tveimur sokkastærðum: #9–11 eða #12–13. Neðst eru Hybrid Gravel Guard™ hlífar sem sameina aðalefnið og styrkt neoprene með góðri teygju – og liggja þétt að til að halda út sandi og smásteinum. Á framhlið er falinn, tæringarfrír krókur sem heldur hlífinni á sínum stað og kemur í veg fyrir að línan flækist. Vöðlurnar eru afhentar í burðarpoka sem andar vel og hentar í geymslu og flutning.

Helstu eiginleikar:
• Endurunnið fjögurra laga pólýesterefni
• Scale™ PRO himna – 20.000 mm vatnsheldni og 7.000 g/m²/24h öndun
• PFAS-frí DWR og bluesign® vottað efni
• Stillanlegt og teygjanlegt axlabandakerfi með Duraflex® festingu
• Tveir brjóstvasar með AquaGuard® rennilásum og opnir fóðraðir vasar
• Comfort Plus™ neoprene sokkar – mótaðir eftir fótum
• Hybrid Gravel Guard™ hlífar – með földum krók
• Netmöskvapoki fylgir

Stærð

2xl, Extra large, Large, Medium

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top