Jaxon Sumato Baitholder Black önglar
Jaxon Sumato Baitholder Black eru sterkir og áreiðanlegir beituönglar sem eru sérstaklega hannaðir til að halda beitu vel á sínum stað. Á skafti öngulsins eru agnhöld (baitholder) sem festa maðka og aðra mjúka beitu örugglega, sem dregur úr því að beitan renni af við köst eða þegar fiskur bítur.
Svarta áferðin veitir góða endingu og minna glampandi útlit í vatninu. Henta vel til veiða á silungi og öðrum ferskvatnsfiski með náttúrulegri beitu.
Eiginleikar:
- Sérhannaðir fyrir maðka og aðra mjúka beitu.
- Agnhöld halda beitunni vel á sínum stað.
- Sterkir og beittir önglar.
- Svört áferð.
- 10 önglar í pakka.


