Search
Close this search box.
, , ,

Guideline Bullet 2.0 WF flotlína

16.500 kr.

Sleipari og harðari klæðning kallar fram betri kastárangur og endingu. Aukin harkan gerir línuna afkastameiri á heitum sumardögum.
Appelsínugult Control Zone gefur til kynna stöðu á back taper, milli Blágráa belghlutans og fölgrænu Running línunnar.
Flugulína sem er nánast áhrifalaus gagnvart vindi og stærri flugum. Skýtur eins og byssukúla og hefur mikið jafnvægi og fellur ekki niður, þrátt fyrir stuttan haus.

Að sjálfsögðu er þetta vegna þess hvernig taperinn er hannaður, dregur úr truflunum í lykkjunni og sendir línuna fljúgandi með lágmarks blindkasti. Bara lyfta og skjóta; þú verður gáttaður/gáttuð á niðurstöðunni!
Lúppa að framan með laser ID merkingu um 50 cm upp frá toppnum.

Bullet 2.0 má nota bæði á einhendur og switch-stangir. Fyrir flestar einhendur borgar sig að taka það línunúmer sem stöngin segir til um. Undantekning kann að vera ef stöngin er mjög hröð.

Fyrir switch stangir er ráðlegt að taka einu (til tveimur) línunúmerum hærra en stöngin er gefin upp fyrir. Sem dæmi skal taka línu #8 (eða #9) fyrir switch-stangir í línuþyngd #7.

Litur: Blágrár, appelsínugulur, fölgrænn.

Stærð

3, 4, 5, 6, 7, 8, 9

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top