Search
Close this search box.
,

Guideline Reach 7/9

21.900 kr.

Fallegt hjól á frábæru verði
> Hentar einhendum í línuþyngdum #7-9
> Nákvæm diskabremsa og breiðkjarna spóla
> Eðlislétt og álagsþolið

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: 105968 Flokkar: ,

Reach hjólið er frábær kostur fyrir byrjendur enda eru gæðin mikil þrátt fyrir lágt verð. Hönnun hjólsins er nútímaleg með sterkri bremsu, sem er sjaldséð í hjólum á þessu verðbili. Bremsukerfið er aðlagað út frá dýrari hjólum fá Guideline og er unnt að fínstilla það með stórum bremsuhnappi. Kerfið er nægjanlega öflugt til að takast á við stærri fiska, s.s. lax og urriða, en þolir um leið sjávarseltu þegar egnt er fyrir sjóbirting.

Með því að nota nýja álsteyputækni, ásamt lofthúðaðri CNC-áferð, er Reach hjólið einkar létt en álagsþolið. Breiðkjarna (e. large arbor) hönnunin gerir veiðimanninum kleift að ná inn línu hratt og dregur um leið úr hættu á línuminni. Opin spólan sér til þess að flugulínan og undirlínan þorni fljótt þegar á bakkann er komið.

  • Nútíma fluguveiðihjól á frábæru verði
  • Nákvæm og mjúk bremsa
  • Stór bremsuhnappur fyrir fínstillingu hjólsins
  • Diskabremsa úr koltrefjum
  • Vinstri og hægri handar uppsetning
  • Nútímaleg hönnun
  • Breiðkjarna fyrir hraðan inndrátt


Reach
 hjólin eru fáanleg í þremur stærðum: 4/6 fyrir léttar einhendur, 6/7 fyrir einhendur í silung og 7/9 fyrir stærri einhendur í lax og öflugan silung. Aukaspólur eru fáanlegar í öll Reach fluguveiðihjólin.

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top