Eartune Hunt eru rafrænir eyrnatappar sem eru sérstaklega hannaðir fyrir skotveiðar og íþróttaskotfimi en einnig hægt að nota tappana við vinnu. Eartune hunt línan er sprotin frá „In-Ear“ heyrna framleiðandanum ADV.
ADV hefur sérhæft sig í mótuðum „í eyra“ heyrnalausnum fyrir tónlistafólk, lögreglu, sérsveitir, björgunaraðila frá upphafi og búa yfir mikilli reynslu af slíkum lausnum ásamt að vera mjög stórir í þeim bransa í heiminum.
Eartune Hunt U – Rafrænir heyrnatappar
Hannað til að vernda heyrnina gegn högghljóði (svo sem skothvellum) ásamt að gera þér kleift að fylgjast með umhverfishljóðum með tveggja þrepa stillanlegri mögnun
Umhverfisvitund
Innbyggður hljóðnemi nemur og magnar upp umhverfishljóð sem hálpar notanda að átta sig á aðstæðum. Öll skaðleg utanað komandi högghljóð eru dempruð við 85dB, heyrnatapparnir loka sjálfkrafa á augnabliki, rétt ríflega 1ms seinkun.
Kostir
- Útsláttur skaðlegra hljóða við 85dB
- Notandi áttar sig betur hvaðan hljóðin koma
- Góð umhverfisvitund
- Tveggja þrepa stilling á umhverfishljóðum
- Öflug vörn gegn högghljóðum (skothvellir, járn í járn)
- IPX4 / IP44 skvettuþolin búnaður
- Passar í flest eyru
- Rafhlaðan endist daginn, með hleðsluboxi
- Hægt að hlaða á þráðlausum hleðsluplatta
——————————————————————————————————————————————–
Eartune Hunt eru rafrænir heyrnatappar hannaðir fyrir skotfimi, nýtast einnig við hefbundna vinnu. Heyrnatapparnir eru með hljóðnema sem magna upp umhverfishljóð fyrir betri umhverfisvitund, hvort sem er fyrir samtal við þá sem eru með í för eða til að heyra betur í kringum þig.
Tveggja þrepa umhverfis hljóðstilling
Eartune Hunt heyrnatapparnir bjóða upp á tvær stillingar á umhverfishlóðum og getur hver og einn því valið það sem hentar hverju sinni. Einnig er hægt að slökkva á umhverfishljóðunum og virka þá tapparnir sem venjulegir heyrnatappar með NRR 22dB* demprun.
*Almennt mælist SNR mælikerfið um 3dB hærra en NRR kerfið, því eru NRR 22dB u.þ.b. SNR 25dB.
Vörn gegn högghljóðum
Eartune Hunt er hannað til að vernda heyrnina fyrir skothvellum, hávaða frá stórskotaliði, sprengingum ásamt að virka vel gegn hljóðum frá naglabyssum, járn í járn hljóðum oþh hljóðum. Tækið er hannað til að bæla niður allan utanaðkomandi hávaða sem fer yfir 85dB með rafrænni tækni. Rétt ríflega 1ms lokunartími á hljóð gerir tækið árangursríkt og áræðanlegt gegn skot- og högghljóðum.
IPX4 rakavarin hönnun
Eartune Hunt er hannað til að standast svita og létta rigningu, skvettuhelt. (Sambærilegt við IP44) Fullkomið til notkunar utandyra við veiðar, göngu, á skotsvæðinu og við vinnu.
Passar í nánast öll eyru
Eyrnatapparnir sitja einfaldlega í eyrnagöngunum þínum án þrýstipunkta samanborið við hefðbundna alhliða eyrnatappa. Þetta veitir hámarks þægindi þó um langa notkun sé að ræða, tilvalið fyrir bæði inni og úti notkun á ferðalögum.
Rafhlöðurnar endast daginn
Eartune Hunt endist í allt að 20 klukkustundir með því að nota einnig hleðsluboxið. Hleðsla eyrnatappa endist í allt að 5 klst í samfelldri notkun að jafnaði. Með því að nota hraðhleðslu eiginleka hleðsluboxsins er Eartune Hunt tilvalin ferðafélagi yfir daginn.
Styður þráðlausa hleðslu
Hægt er að hlaða hleðsluboxið með Qi-hleðsluplatta að auki við USB hleðslutengingu.
Nánari upplýsingar:
Ytri litur Svart / Camo
Innri litur Svart
Rafhlaða Lithium-ion
Demprun NRR 22dB / SNR 25dB (u.þ.b)
Slær út ytri hljóð við 85dB@1ms+
Hljóðnemi umhverfishljóða Víðstefnuvirkur
Hljóðstilling umhverfishljóða 2ja þrepa
Hljóðaukning umhverfishljóða (High) 28dB
Hljóðaukning umhverfishljóða (Low) 15dB
Þráðlaus tenging (Bluetooth) Ekki í boði
Ending hleðslu, heyrnatappar 5 klst
Ending hleðslu, hleðslubox 20 klst
Hleðslutími heyrnatappar 1,5 klst
Hleðslutími hleðslubox 1,5 klst
Hleðslutengi USB-C
Þráðlaus hleðsla við Qi platta Hleðsla studd í boxi
Vatnsheldni Skvettuhelt (IPX4 / IP44)
Hvað fylgir með!
- Eitt sett af rafrænum Eartune Hunt heyrnatöppum
- Eartune Hunt hleðslubox
- Fjögur sett af af „Fidelity U“ eyrnatöppum (XS/S/M/L) (Almenn notkun)
- Þrjú sett af „Memory-foam“ eyrnatöppum (Skotfimi oþh)
- Ein USB-C hleðslusnúra




