Að kaupa skotvopn og skotfæri !
Byssur
Við kaup á byssum hjá Veiðiflugunni er áríðandi að gefa upp allar upplýsingar sem beðið er um og mun sölumaður frá versluninni hafa samband við þig eftir að pöntun hefur borist til að meðal annars gefa þér upp landsnúmer skotvopns til skráningar.
Skot
Við kaup á skotum og hleðsluvörum er áríðandi að nafn, kennitala og númer skotvopnaleyfis passi saman þar sem við munum kanna réttindi hvers og eins sem pantar þessar vörur. Skot og hleðsluvörur verða ekki send á annan aðila en þann sem skráður er fyrir skotvopnaleyfinu. Sé skotvopnaleyfisnúmer og afrit af skotvopnaleyfi ekki sent á veidiflugan@veidiflugan.is er ekki hægt að afgreiða þá pöntun.
