RIO Stormur tvíhendulína flot

21.995 kr.

- +
Vörunúmer: 6-591678 Flokkur:

Rio Stormur er tvíhendulína, framleidd hjá Rio í Idaho í Bandaríkjunum.

Rio Stormur er skotlína með stuttum haus og samfastri, mislitri rennilínu.

Stormur er hannaður til að hlaða stangir hratt og auðvelda tvíhenduköst.  Stormur er byggður á teygjulausum kjarna með sleipri kápu sem rennur hratt og endist lengi.

Þyngdarpunkturinn liggur aftarlega í vel hönnuðum hausnum og auðveldar því hleðslu.

Frammjókkunin er nógu löng til að mynda þröngan bug í köstum og leggja línuna ljúflega á vatn.

Rio Stormur ber auðveldlega Rio Versi-Tip endana sem fáanlegir eru í tveimur lengdum og nokkrum þyngdum.

Rio Stormur er í flokki Elite lína Rio.  Elite línurnar eru byggðar á nýjasta teygjulausa kjarnann sem bætir virkni og ýkur mýkt og endingu.

SlickCast kápan er sleipasta og endingarbesta kápan á markaðnum.  Hún er með minnstu núningsmótstöðu sem mælst hefur á flugulínum.

Rio Stormur er marglit lína með auðsjáanlegum hleðslukafla og taumalykkjum á báðum endum.

Stormur er fljótandi skotlína fyrir tvíhendur, auðveld í köstum, framleidd af Rio fyrir Veiðihornið og íslenska veiðimenn.

Stormur er framleiddur í línuþyngdum #6, #7, #8, #9 og #10.

#6 – 350 grain
#7 – 400 grain
#8 – 470 grain
#9 – 540 grain
#10 – 610 grain

Stuttur hausinn hleður tvíhenduna þína hratt sem er frábært þar sem pláss fyrir bakköst er takmarkað.
Hleðslukaflinn auðveldar þér að meta rétta hleðslu fyrir næsta kast.

Stærð

10, 6, 7, 8, 9

Vörumerki

Río

Shopping Cart
Scroll to Top