Duck Oven Jacket Optifade Waterfowl
Eins og nafnið gefur til kynna er Duck Oven jakkinn ómissandi á ísköldum dögum seint á veiðitímabilinu. Ytra byrðið er með vindheldu GORE™ WINDSTOPPER® lagskiptu efni, 200 g/m2 Primaloft® Silver einangrun er í bolnum og 133 g/m2 í ermunum. Jakkinn heldur því búknum sérstaklega hlýjum. Mjög teygjanlegt Gradient efni á neðsta þriðjungi jakkans auðveldar að stinga honum niður í vöðlur eða smekkbuxur án þess að skerða hreyfifrelsi.




