,

Guideline laxa renndur vöðlupakki m/nelgdum skóm

106.890 kr. 85.530 kr.

Laxá Zip vöðlupakki I inniheldur Laxá Zip öndunarvöðlurnar, renndar 4-laga vöðlur frá Guideline. Framan á þeim er vatnsheldur TIZIP-rennilás sem eykur þægindi við að komast í og úr vöðlunum. Vöðlunum fylgja Laxá 3.0 skór, sem unnt er að fá með  negldum gúmmíbotni (traction),

Guideline Laxa 2,0 m/rennilás

76.900 kr.

Laxá 2.0 Zip eru renndar öndunarvöðlurnar frá Guideline sem framleiddar eru úr sterku fjögurra laga nælonefni. Vatnsheld filman er úr vistvænum efnum og hrindir frá sér vatni og óhreinindum. Saumar að innanverðu eru lokaðir með tækni sem nefnist Sidewinder, sem eykur endingu og um leið hreyfigetu notandans.

- +

Guideline Laxa 3,0 vöðluskór nelgdir

29.990 kr.

- +

Alvöru vöðlupakki jafnt fyrir byrjendur sem og lengra komna.

Virkilega álitlegur vöðlupakki með hliðsjón af verði og gæðum. Vöðluskórnir í pakkanum eru Laxá 3.0, sem hægt er að fá með filt- og negldum gúmmísóla, eða Greenback skórnir frá Korkers. Laxá Zip eru rennilásavöðlur sem framleiddar úr 4-laga álagsþolnu nælonefni. Þær eru úr vistvænni efnum og meðhöndlaðar þannig að þær hrindi bæði frá sér vatni og óhreinindum. Saumar þeirra eru lokaðir með því sem nefnist Sidewinder, sem eykur styrk þeirra og um leið hreyfigetu notandans.

Vatnsheldur TIZIP-rennilás er framan á vöðlunum sem býður upp á mikil þægindi við að komast í þær og úr. Tveir stórir brjóstvasar með lóðréttum rennilásum sitja ofarlega á brjóstsvæðinu. Á hliðum eru flísfóðraðir vasar til að verma hendurnar. Vöðlurnar eru með þægilegum axlaböndum. Vöðlubeltið stillanlegt og situr í beltislykkju að aftan. Sandhlífar eru úr álagsþolnu efni með gúmmístyrktri teygju að neðan sem gengur yfir skóna. Sokkarnir eru úr þéttu neophrene efni og eru aðlagaðir að hvorum fæti.

Laxá 3.0 vöðluskórnir eru einkar léttir, slitsterkir og þorna fljótt eftir að á bakkann er komið. Skórnir eru styrktir á hliðum með gúmmíkanti til varnar þegar gengið er yfir óslétt yfirborð og milli hvassra steina. Skórnir eru með negldum gúmmíbotni (traction). Hönnun vöðluskónna sér til þess að einfalt er að fara í þá og úr, en þeir reimast hátt og veita stuðning við ökklana.

Flottur pakki fyrir þau sem vilja aukin þægindi við veiðar.

Vörumerki

Guideline

Þér gæti einnig líkað við…

Shopping Cart
Scroll to Top