Search
Close this search box.

Tonic YOURANIUM Neon copper

34.900 kr.

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: tyoublkglneong2 Flokkur:

TONIC Neon kopar linsan, sjáðu það sem þú hefur ekki séð áður ! Youranium hentar breiðari andlitum. Flottur rammi sem situr geysilega vel og lokar miklu svæði fyrir ljósi.

Er léttasta veiðilinsan , hún lýsir upp við erfið birtuskylirði og hentar því frá morgni til kvölds, linsan pikkar upp rauðu,bláu, grænu og gulu litina og er þar af leiðandi með mikið litróf.

Með Tonic linsum fæst framúrskarandi skýrleiki og litaupplifun sem þú vissir ekki af og eru Tonic linsurnar þær einu sem eru framleiddar með Crystalite gleri sem er ein skýrasta glerlinsa sem til er í polaroid gleraugum.

Með því að búa til fjögurra lita linsur og húða linsurnar að innan með andspeglunarfilmu mun notandinn njóta alvöru augnvarnar án þess að missa skynjun á litum og er þetta gríðarlega mikilvægt þegar verið er að staðsetja og finna fiska.

Miðlinsan gerir notanda kleift að líta beint fram, til hliðar upp og niður án þess að upplifa sjónræna röskun, sem hjálpar til við að láta þér líða vel þegar farið er yfir erfitt landslag eða vatn.

Allir umgjarðir eru hannaðir til að standast erfiðar aðstæður hvort sem er í hita eða kulda,þær eru léttar og endingargóðar.

Tonic glerlinsurnar eru léttari og þynnri en gengur og gerist (aðeins 1,7mm á þykkt) og eru fáanlegar í mörgun litaafbrigðum eins og gráu, kopar, bláu , grænu og rauðu jafnframt eru glerlinsurnar rispufríar. Tonic gleraugun er gott að bera á andlitinu allan daginn vegna léttleika þeirra og umfram  allt eru linsurnar þannig búnar að augunum líður vel og slappa af þegar horft er í gegnum þær.

12 mánaða ábyrgð fylgir öllum Tonic gleraugum þau koma í fallegu hulstri með poka.

Yourannium-Dimensions.png

Shopping Cart
Scroll to Top