Search
Close this search box.
,

Guideline HALO 7/9 fluguhjól DH black

51.900 kr.

Vandað hjól fyrir léttar tvíhendur
> Gengur einnig með switch-stöngum í laxinn
> Nægt rými fyrir skothausa og aðrar þykkar línur
> Vegur 219 gr.

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: 105820 Flokkar: ,

Halo eru nýjustu hjólin frá Guideline sem eru þrátt fyrir hagstætt verð ákaflega vönduð. Hjólin eru framleidd úr renndu áli og eru tiltölulega eðlislétt. Þau eru algjörlega lokuð svo ekki er hætta á að línan festist á milli hjólsins og spólunnar. Halo búa að vatnsþéttu og vönduðu diskabremsukerfi sem er svo gott sem viðhaldsfrítt.

Hjólin eru breiðkjarna (e. full frame) sem gerir veiðimönnum kleift að ná slaka inn hratt, auk þess sem hönnunin dregur úr líkum á línuminni.   Halo fást í fimm stærðum, fyrir léttar einhendur upp í fullvaxta tvíhendur.

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top