Search
Close this search box.
, ,

Guideline Elevation einhenda 9″ #6

45.900 kr.

Ekki til á lager

Vörunúmer: 105315 Flokkar: , ,

Geggjuð ný stöng frá Guideline.

Elevation stangar sería Guideline eru ofurléttar miðlungshraðar stangir. Hannaðar fyrir veiðimenn á öllum stigum. Notast er við sjálfbært framleiðsluferli og umhverfisvæna hluti.

Notast er við allra nýjustu efni og tækni í framleiðslu á þesusm byltingarkenndu stöngum, sem og að notast er við marga umhverfisvæna hluti.

Guideline hefur hafið græna vegferð að vörum framleiddum eftir sjálfbærum leiðum, og mun þessi stöng verða vegvísir að framtíðarstöngum Guideline. Unnið hefur verið hörðum höndum í þróunarferlinu að gera þessar stangir að besta vali fyrir alla veiðimenn sem annt er um umhverfið. Í þróun á stangarhlutunum var allt efni sem ekki var nauðsynlegt fjarlægt. Það hefur gefið Guideline einnig þann möguleika að fylgjast með orku og krafti hvers stangarhluta af mun meiri nákvæmni. Þessar stangir eru ótrúlega léttar og með mikla virkni, en samt sterkustu ‘venjulegu’ stangir sem Guideline hefur framleitt.

Stangirnar eru með næman topp sem er einstaklega stöðugur og nákvæmur, með smátt og smátt mýkri sveigju niðureftir stangarhlutunum niður í kraftmikinn neðsta hluta. Það er einstaklega ljúft og einfalt að kasta með þessari virkni, með mikilli fyrigefningu og framkallar nákvæm köst með miklum línuhraða. Stangirnar hafa allar frábæra línutilfinningu og henta fyrir allar gerðir af kaststílum.

Þetta eru frábærar grænni nútímastangir með virkni sem hentar veiðimönnum á öllum stigum.

Vörumerki

Guideline

Shopping Cart
Scroll to Top