Search
Close this search box.
,

Gerber US1 vasahnífur

5.990 kr.

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: ge-1027827 Flokkar: ,

Léttur og einfaldur vasahnífur

Áratuga reynsla fullkomnaði hönnun á US1 vasahnífnum, sem er hannaður og framleiddur í Ameríku. Einn allra besti hnífur í sínum flokki, með blað úr 420HC stáli og sterka og einfalda back-lock læsingu sem kemur í veg fyrir að hnífur lokast við notkun.

  • Heildarlengd: 155 mm
  • Lengd blaðs: 66 mm
  • Þyngd: 29 g.
  • Stál í blaði: 420HC steel
  • Egg blaðs: Slétt
  • Efni skeftis: 30% trefjafyllt nylon með gúmmíklæddu gripi
  • Læsing: Back Lock, ofan á skefti
  • Léttur og þunnur
  • Skefti mótað með skoru fyrir vísifingur, fyrir betra grip
  • Skora í blaði til að ná gripi með nögl.
  • Auga til að festa við sig eða farangur með snúru, karabínu eða á annan hátt.
  • Lífstíðar ábyrgð
  • Framleiddur í USA

US1 vasahnífurinn er vitnisburður um að góð vinna skilar góðum árangri. Með reynslu margra áratuga að baki var US1 vasahnífurinn hannaður af Gerber, á ólíkan hátt en aðrir hefðbundnir vasahnífar og úr öðrum hráefnum án þess að fórna notagildi eða gæðum sem Gerber er þekkt fyrir. Með stolti er þessi dags daglegi „félagi“ framleiddur í Portland, Oregon, USA og mun með tímanum sanna gæði Gerber fyrir komandi kynslóðum.

Með US1 hefur hefðbundinn vasahnífur verið uppfærður. Hágæða 420HC amerískt stál í blaðinu, er tilbúið að takast á við þau verkefni sem notandanum dettur í hug að nota það í. Sterkt skefti úr trefjafylltu nylonefni er klætt með gúmmíi til að minnka hættu á að missa hnífinn og til að hafa fullkomna stjórn á honum. Þunn hönnun veldur því að hann passar vel í vasa án þess að fari of mikið fyrir honum. US1 vasahnífurinn er frábær viðbót fyrir hið dags daglega líf í 30 gramma pakkningu.

Notendavænt skefti sem er hannað til að hfa gott grip og með skoru fyrir vísifingur, færir notandanum öryggi og þægindi við notkun. „Lock-Back“ læsingin ofan á skeftingu sér til þess að hnífurinn lokast ekki óvænt við notkun og veitir notandanum því meira öryggi. Hins vegar er auðvelt að opna læsinguna til að fella blaðið inn í skefti eftir notkun. US1 vasahnífurinn er ný kynslóð af vasahníf, sem er tilbúinn að þvælast með eigandanum um komandi ár.

 

Shopping Cart
Scroll to Top