Search
Close this search box.
, ,

ALFA Arctic 3 Lava red fluguhjól

39.900 kr. 31.920 kr.

ALFA Arctic 3 Lava red fluguhjól

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: alfaarc3lavared Flokkar: , ,

Litli bróðirinn sem gerir allt það sem honum er ætlað, og er hið fullkomna almenna silungsveiðihjól. Fyrir línuþyngdir 3 – 6.
Hin ótrúlegu Alfa fluguhjól frá Finnlandi.

Þúsundir þekkja Alfa flughjólin, og ekki einungis vegna hins sérstaka litavals, heldur einnig vegna þess að hér er á ferð hágæða Finnsk hönnun og framleiðsla!

Nafnið segir allt sem segja þarf. ARCTIC – hreint, tært, listilegar hönnunarlínur með fullkomnu bremsukerfi. Með því að nota bestu efni sem völ er á hafa hönnuðir og verkfræðingar Alfa skapað gríðarfallegt villidýr. Náttúra norðursins og list hafa verið drifkraftur í sköpun á þessu fallega útliti. Og ekki einungis er það útlitið sem máli skiptir, heldur er það sem þau búa að að innan sem skiptir álíka miklu máli. Alfa teymið hefur skapað einstakt nútíma bremsukerfi með hámarks bremsukrafti sem er samt sem áður einstaklega mjúkt.

ARCTIC hjólin koma öll með margdiska kotrefja bremsukerfi sem Alfa teymið vill meina að það sé skilvirkasta efnið sem til er til að standast mikinn hita án þess að slitna. Ólíkt öðrum bremsukerfum sem nota kork, plast, eða fjölliða efni þá þjappast koltrefjar ekki né rýrnar, bráðnar, né brennur. Það hefur gert Alfa teyminu kleyft að búa til hágæða bremsukerfi sem er mjög traust og endingargott.
Arctic fluguhjólin eru með 17.5kg / 38lbs bremsukraft í stærðum 5 og 7.

Hægt er að nota stærð 5 af hjóli með stærð 7 af spólu og öfugt, og þessi flotti fídus á einnig við með stærðir 9 og 11.
Ekki er þörf á að nota nein verkfæri þegar inndrætti er snúið.

ARCTIC 3 er ótrúlega gott silungsveiðihjól. Hentar vel upp að línuþyngd 6 og átt samt gott pláss fyrir mikla undirlínu sem er gott að hafa þegar sá stóri tekur.

ARCTIC 3 hjólið hefur 7.5 / 16lbs bremsukraft og er þinn trausti ferðafélagi þegar haldið er til veiða.

Upplýsingar:

Ofurlétt, miðlungs arbor hjól
Djúp, hönnun í botni spólu fyrir auka undirlínu
Multi-disk koltrefja bremsukerfi – einstaklega mjúkt, með gríðarlegum krafti
Rennd úr heilli 6061 airplane grade álblokk
Bremsuhnappur úr áli
Er seltuþolið og með þéttu bremsukerfi
Samhæft fyrir Omega 4-D flugustangir
MÓDEL LÍNUÞYNGDIR ÞYNGD
ARCTIC 3 3 – 6 146 g
ARCTIC 5
5 – 7 174 g
ARCTIC 7 7 – 9 174 g
ARCTIC 9 8 – 10 186 g
ARCTIC 11 10 – 12 188 g
Ábyrgðir og þjónusta:
Alfa er ekki að flækja hlutina. Tveggja ára ábyrgð, og þar á eftir er fullkomin þjónusta.
Alfa er metnaðarfullt fyrirtæki með bækistöðvar í Rovaniemi í Finnlandi, rétt ofan við Norðurheimskautsbaug. Allt frá byrjun hafa hönnuðir fyrirtækisins verið með skýrt markmið: að þróa hágæða vörur sem bætir einhverju nýju við fluguveiðina þína! Vörur þar sem hugsað hefur verið fyrir öllu, eru fallegar, og áræðanlegar.
Hinar hörkulegu aðstæður ofan Norðurheimskautsbaug eru hinn fullkomni leikvangur þegar kemur að hönnun og prófunum á vörum Alfa.

Vörumerki

Alfa

Shopping Cart
Scroll to Top