Search
Close this search box.
, ,

Royal Canin French Bulldog 9 kg

15.790 kr.

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: r220400 Flokkar: , ,

Þurrfóður fyrir Franska Bolabíta eldri en 10 mánaða

 

Vöðvamassi

Aðstoðar við að viðhalda vöðvamassa með aðlöguðu magni próteina. Ennfremur inniheldur fóðrið L- karnitín sem leikur stórt hlutverk í eðlilegri fitubrennslu.

Bætt melting

Stuðlar að bættri meltingu með góðgerlafæðu (FOS). Vinnur gegn of mikilli gerjun í þörmum og dregur þannig úr vindgangi og illa lyktandi hægðum – sem eru frábærar fréttir fyrir eigendur Franskra Bolabíta!

Viðheldur og styrkir húð og feld

Styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar með fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (EPA og DHA) en þær leika lykilhlutverk í öllum frumuhimnum líkamans – húð verður sterkari og feldurinn glansandi fallegur.

Heilbrigðir liðir

Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.

Fóðurkúlurnar

Kúlurnar eru þannig að stærð og lögun að það er auðveldara fyrir hundinn að ná þeim upp en flatnefja tegundir eiga oft í erfiðleikum með að koma fóðurkúlum upp í munninn. Sömuleiðis hvetur stærðin og lögunin Bolabítinn til að tyggja og hafa þannig eðlilega meltingu þannig að það komi ekki of mikið magn fóðurs í magann of hratt – á þann hátt verður uppþemba í maga ólíklegri.

Tannheilsa

Lögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því á tennurnar ákveðna „burstun“ frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.

Næringargildi

Prótein: 24% – Trefjar: 2.8% – Fita: 14%.

Vörumerki

Royal canin

Shopping Cart
Scroll to Top