| Um okkur |
| Höfundur Administrator | |
| Sunday, 01 October 2006 | |
|
Eigandi Fjarðasports og Veiðiflugunar er Samvinnufélag Útgerðarmanna í Neskaupstað. Samvinnufélagið eða SÚN eins og það er kallað var stofnað 1932 og verkefni félagsins var að selja útvegsmönnum salt og önnur aðföng á hagstæðara verði en kaupmenn staðarins buðu. Félaginu óx fljótt hryggur um hrygg enda þáttaka útgerðarmanna í stofnun þess almenn. Starfsemin var fjölbreytt og blómleg m.a. rak félagið frystihús og saltfiskverkun auk verslunar með veiðarfæri og aðrar útgerðarvörur. 1958 stóð SÚN fyrir stofnun Síldarvinnslunar hf. Á seinni árum hafa umsvifin minnkað enda dótturfélagið Síldarvinnslan löngu búið að taka við af mömmu gömlu. Verslun félagsins sem löngum var nefnd SÚN búðin hefur nú nafnið Fjarðasport. Í september 2004 keypti SÚN rekstur og nafn Veiðiflugunnar ehf á Reyðarfirði og í apríl 2005 fluttist Veiðiflugan í glæsilegt húsnæði í verlsunarmiðstöðinni Molanum á Reyðarfirði. Bæði Fjarðasport og Veiðiflugan eru glæsilegar verslanir með mikið úrval af sport og útivistarvörum eða flest sem nöfnum tjáir að nefna til veiða í lofti , láði og á legi auk þess að í báðum verslunum eru opnar vínbúðir. Samvinnufélagið er að auki með umboð fyrir Tryggingamiðstöðina í Neskaupstað , rekur Olíusamlag Útvegsmanna sem er með umboð fyrir Olíuverslun Íslands og fleirra mætti telja. Lykilmenn á Samvinnufélaginu eru : Freysteinn Bjarnason framkvæmdarstjóri SÚN This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it Guðmundur E Ingvarsson versl.stj. Fjarðasport This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it Björgvin þ Pálsson versl.stj. Veiðiflugunnar This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it Stjórnarformaður SÚN er Guðmundur Bjarnason. |
|
| Síðast uppfært ( Sunday, 01 October 2006 ) |