Heim arrow Um okkur
Um okkur PDF Print Senda
Höfundur Administrator   
Sunday, 01 October 2006

Eigandi Fjarðasports og Veiðiflugunar er Samvinnufélag Útgerðarmanna í Neskaupstað. Samvinnufélagið eða SÚN eins og það er kallað var stofnað 1932 og verkefni félagsins var að selja útvegsmönnum salt og önnur aðföng á hagstæðara verði en kaupmenn staðarins buðu. Félaginu óx fljótt hryggur um hrygg enda þáttaka útgerðarmanna í stofnun þess almenn. Starfsemin var fjölbreytt og blómleg m.a. rak félagið frystihús og saltfiskverkun auk verslunar með veiðarfæri og aðrar útgerðarvörur. 1958 stóð SÚN fyrir stofnun Síldarvinnslunar hf.

Á seinni árum hafa umsvifin minnkað enda dótturfélagið Síldarvinnslan löngu búið að taka við af mömmu gömlu.

Verslun félagsins sem löngum var nefnd SÚN búðin hefur nú nafnið Fjarðasport. Í september 2004 keypti SÚN rekstur og nafn Veiðiflugunnar ehf á Reyðarfirði og í apríl 2005 fluttist Veiðiflugan í glæsilegt húsnæði í verlsunarmiðstöðinni Molanum á Reyðarfirði.

Bæði Fjarðasport og Veiðiflugan eru glæsilegar verslanir með mikið úrval af sport og útivistarvörum eða flest sem nöfnum tjáir að nefna til veiða í lofti , láði og á legi auk þess að í báðum verslunum eru opnar vínbúðir.

Samvinnufélagið er að auki með umboð fyrir Tryggingamiðstöðina í Neskaupstað , rekur Olíusamlag Útvegsmanna sem er með umboð fyrir Olíuverslun Íslands og fleirra mætti telja.

Lykilmenn á Samvinnufélaginu eru :

Freysteinn Bjarnason framkvæmdarstjóri SÚN This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

Guðmundur E Ingvarsson versl.stj. Fjarðasport This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

Björgvin þ Pálsson versl.stj. Veiðiflugunnar This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

Stjórnarformaður SÚN er Guðmundur Bjarnason.

Síðast uppfært ( Sunday, 01 October 2006 )
 
< Fyrri
© 2010 Joomla
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.