Heim arrow Fréttir
Fréttir PDF Print Senda
Höfundur Administrator   
Sunday, 01 October 2006

27 Febrúar 2008

Nú er sala veiðileyfa hafin í Norðfjarðará fyrir sumarið 2008 og er óhætt að segja að salan fari vel af stað en gríðarlegur áhugi er fyrir sumri komandi í Norðfjarðará. Áhugasamir geta haft samband við Guðmund í Fjarðasport í síma 4771133 eða á fjarðasport@fjarðasport.is til að tryggja sér daga fyrir sumarið.

11 September 2007 

Gríðarleg góð veiði hefur verið í sumar í Norðfjarðará og þegar þetta er skrifað eru komnar hátt í 600 bleikjur og á 3 tug laxa. Undanfarna daga hafa veiðimenn verið að fá upp í 5 laxa á hálfum degi og virðist vera mikið um lax í ánni þar sem hann er að veiðast um alla á.             Norðfjarðará lokar 20 september og eru enn nokkur leyfi laus og kjörið að ná sér í fallega haustbleikju og eða nýgenginn lax á spottprís. 

Veiðin í Sléttuá hefur gengið frekar rólega það sem af er sumri og hafa vel á annað hundruð bleikjur veiðst í sumar. 

12 apríl 2007

Gríðarleg mikil aðsókn er í veiðileyfi í Norðfjarðarána þetta sumarið og eru mjög fáar stangir eftir í júli og farið að bókast mjög vel fram eftir ágúst mánuði þannig að ekki er seinna vænna að tryggja sér stöng í tíma í þessa frábæru sjóbleikjuá.

27.mars 2007

Nú er hafin sala á veiðileyfum í Norðfjarðará veiðisumarið 2007. Það verður fækkað um eina stöng, það verða 3 stangir í stað 4. Veiði hefst laugardaginn 16. júní. Við viljum benda áhugasömum veiðimönnum á að bóka sig sem fyrst vegna mikillar aðsóknar.

02 mars 2007

Nú eru Sako 85 rifflarnir komnir í hús og farnir að seljast enda glæsileg vopn þar á ferðinni. Nú er tilvalinn tími til að huga að góðu vopni fyrir haustið og ekki seinna vænna að tryggja sér eintak. 

25 september 2006

Litlar og frekar lélegar fréttir er að hafa af gæsaveiði á austurlandi en þó eru fréttir af nokkrum veiðimönnum sem fengið hafa á 3ja tug heiðagæsa á einu kvöldi, en öllu rólegra er í grágæsaveiðum ennþá.

20 september 2006

Nú er veiði lokið í Norðfjarðará og Sléttuá þetta sumarið og er óhætt að segja að sumarið hafi komið ágætlega út í Norðfjarðará en þar veiddust tæpar 800 bleikjur og nokkrir laxar og var stærsta bleikja sumarsins rúm 3 kg. Í sléttuá var veiðin frekar léleg en þar veiddust á annað hundrað fiskar .

18 júlí 2006

Gríðarlega góð veið er þessa dagana í Norðfjarðará og eru veiðimenn að fá glæsilegar bleikjur inn eftir allri á . Í morgun komu 11 bleikjur á land á 2 stangir og var þyngdin á þeim frá 1 kg upp í 3,1 kg og voru stærstu fiskarnir að veiðast í Klapparhyl. Bleikjur um og yfir 1,5 kg voru að veiðast í Hólahyl og Hólabreiðu og er greinilegt að bleikjan er gengin inn eftir allri á.

17 júlí 2006

Nú er veiðin komin á fullt í Norðfjarðaránni og er bleikjan farin að veiðast inn með allri á . Stærsti fiskurinn í sumar er 2,7 kg og veiddist hann innan við golfvöllinn nánar tiltekið ofan við Hundshyl og hafa veiðimenn verið að fá fiska inn undir Hólahyl. Mikið virðist vera af fiski á ferðinni og verða næstu dagar örugglega spennandi í ánni en mjög fá leyfi eru á lausu næstu daga.

12 júli 2006

Nú eru haglaskotinn að byrja að koma í hús og verður glæsilegt úrval af skotum í Veiðiflugunni í haust, má þar nefna að Winchester og Rio skotinn verða fáanleg í haust ásamt Hlað og Patriot, B&P og Express þannig að allir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi í veiðina. Úrvalið af Camo fatnaði og vöðlum verður glæsilegra en áður hefur sést og ættu allir veiðimenn að fá eitthvað við sitt hæfi í veiðideildinni hjá okkur og ættu því ekki að þurfa að leita langt yfir skammt þar sem verð og gæði eru með því besta sem þekkist á markaðnum.

Veiðin í Norðfjarðaránni er í fullum gangi og hafa nokkrir veiðimenn fengið góðan afla í Keldunni og ætti bleikjan að fara að renna inn í á þessa dagana og verður gaman að fylgjast með aflabrögðum næstu dagana.

15 mai 2006.

Veiði er hafin í austfirskum ám og er það Breiðdalsáin sem opnaði fyrst eða þann 1 mai. Veiði þar fór vel af stað og veiddust yfir 20 bleikjur fyrsta daginn.

25 júni 2006.

Veiði er hafin í Norðfjarðará og er hægt að segja að hún fari ágætlega af stað . það veiddust 17 bleikjur á 2 stangir á aðeins 3 tímum opnunardaginn 17 júní og var talsvert líf að sjá í Keldunni og veiddust þær á hinar ýmsu flugur.

Hreindýraveiði.

Nú stytist óðum í hreindýraveiðarnar fari af stað og af því tilefni bjóðum við Hreindýraflautur í fyrsta sinn á Íslandi
Veiðimenn eru margir hverjir í óðaönn að undirbúa sig fyrir komandi hreindýraveiðitímabil sem hefst 15. júlí nk en þá má veiða tarfa á öllum veiðisvæðum. Í því sambandi má nefna að við verðum með sérstakar hreindýraflautur frá Buck Expert í Canada sem virka órtrúlega vel þar í landi eftir áralangar tilraunir þekktra veiðimanna. Hreindýraflauturnar eru til sölu nú þegar í Veiðiflugunni og jafnframt eigum við til VHS myndband frá Buck Expert þar sem þessar flautur eru sýndar í verki og veiðimenn nota við veiðar. Glæsilegt og ótrúlega skemmtilegt myndband sem menn ættu að kynna sér.

08 júlí 2006.

Nú eru 7 dagar í hreindýraveiðina og greinilegt að veiðimenn jafnt sem leiðsögumenn eru farnir að taka sig til þar sem mikið hefur verið um að vera í veiðideildinni hjá okkur.2006-07-082006-07-08

Nú er komin bátaleiga á Eskifjörð nánar tiltekið hjá Sævari og Berglindi á Mjóeyrinni, sjá www.mjoeyri.is og er þetta glæsileg viðbót í flóruna fyrir ferðamenn sem og aðra sem áhuga hafa á að skreppa í smá sjóferð og jafnvel að dorga í okkar fallega firði en hægt er að fá leigðar stangir með öllum búnaði til sjóstangveiða með bátunum.

Ágætis veiði hefur verið í Norðfjarðaránni en aðal veiðin hefur verið í Keldunni og hefur sést mikið af fiski þar , ekki er vitað þegar þetta er skrifað um neinn veiðimann sem hefur haft árangur sem erfiði upp í ánni sjálfri en það ætti að koma núna næstu daga þar sem vatnshitinn fer hratt upp þesa dagana og ætti fiskurinn að vaða upp í á næstu daga.

 

Síðast uppfært ( Wednesday, 27 February 2008 )
 
Næst >
© 2010 Joomla
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.