Fjarðasport og Veiðiflugan eru með Norðfjarðará á leigu en hún er með betri sjóbleikjuám á landinu.
Smelltu hér fyrir neðan og nálgastu veiðikort af Norðfjarðará.
í Norðfjarðará eru leyfðar 3 stangir í einu og er verðinu á hverri stöng stillt mjög í hóf.
Sumarið 2007 veidust um 700 bleikjur og 20 laxar í ánni á 3 stangir og var meðalþyngd á bleikjunni um og yfir 2 pund. Í ánni eru að veiðast sjóbleikjur upp í 6 - 7 pund.
Veiðitíminn er frá 17 júni til og með 20 september og er besti veiðitíminn að öllu jöfnu júlí og ágúst en í júni fer veiðin að mestu fram í neðri hluta árinnar. Í september er haustbleikjan að tínast inn og er hún smærri en sú bleikja sem veiðist í júli og ágúst en á móti kemur að hún getur verið í gríðarlegu miklu magni um alla á.
Á Reyðarfirði höfum við séð um að selja veiðileyfi fyrir landi Sléttu í Reyðarfjarðaránni sem gegnur undir nafninu Sléttuá. Þar er veiðisvæðið mun styttra og hefst veiðin þar mun seinna en í Norðfjarðará eða að öllu jöfnu ekki fyrr en í lok júli en stór hluti veiðinnar í Sléttuá fer fram í ágúst og sepember og eru leyfðar 3 stangir í Sléttulandi og hafa verið að veiðast 300 - 600 bleikjur ár hver ásamt nokkrum löxum.Meðalþyngd bleikjunnar árið 2007 var um 0,3 kg og eru að veiðast bleikjur upp í 5 pund
Veiðileyfi fást í Fjarðasport og Veiðiflugunni.
|