Veiðiflugan hefur eina glæsilegustu skot og veiðideild sem sést á landinu. Ávalt er fyrirliggjandi mikið úrval af haglabyssum og rifflum ásamt glæsilegu úrvali af skotum, veiðifatnaði, gönguskóm og öðrum fylgihlutum sem nauðsynlegir eru í veiðina og umhirðuna.
Við kappkostum að eiga alltaf gott úrval af skotvopnum , sjónaukum , gps tækjum og öðrum nauðsynlegum vörum sem þarf í skotveiðina .
Í Haglabyssum bjóðum við upp á breiða línu sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í en þar má helst telja Ítalskar Benelli haglabyssur sem hafa í gegnum tíðina þótt mjög áreiðanlegar og á frábærum verðum fyrir veiðimanninn, Remington merki sem allir þekkja , Breda bakslagsskipt ítölsk gæða byssa, Maverick og Mossberg haglabyssur .
Í rifflum eru helstu merkin okkar Sako, Tikka, Remington, og CZ Brno en þetta eru sennilega mest seldu riffilmerkin á landinu og eru öll mjög þekkt fyrir gæði og góð verð.
Haglaskotin sem við höfum á lager eru frá Hlað, Patriot, Express, Remington, og Game Bore.
Riffilskotin eru frá Sako, Remington,Lapua, PMC og öðrum framleiðendum fer eftir lagerstöðu hverju sinni.
Helstu merki í sjónaukum sem til eru á lager hjá okkur eru hinir geysivinsælu Zeiss sjónaukar sem njóta gríðarlegra vinsælda, Meopta mjög góðir hand og riffilsjónaukar á góðum verðum, Bushnell sem býður upp á sanngjörn verð fyrir ágætis vöru bæði í riffilsjónaukum og handsjónaukum.
Í hreinsiefnum og vörum fyrir byssueigandan ásamt tvífótum, minkagildrum, vasa og höfuðljósum , felubyrgjum og öðru sem nauðsynlegt er að hafa við hendina til að tryggja góða veiðiferð.
Garmin GPS tæki eitt vinsælasta merkið á Íslandi í staðsetningartækjum sem býður upp á mjög breiða línu á verðum fyrir alla.
Í fatnaði reynum við að kappkosta að eiga alltaf fyrirliggjandi camoúlpur, camojakka , camobuxur , camovöðlur , vettlinga og húfur ásamt góðum nærfatnaði fyrir veiðimanninn og í útivistina og er það okkar metnaður að eiga alltaf það nýjasta sem í boði er hverju sinni.
Hjá okkur færðu eitt glæsilegasta úrval á landinu í flautum til ýmsa veiða svo sem gæsaflautur fyrir grá og heiðargæs, andaflautur, refa og yrðlingaflautu og hreindýraflautur sem eru frábær nýjung i flautuflóruna okkar . Jafnframt er í boði hjá okkur glæsilegasta úrval landsins af veiðimyndum á DVD diskum frá Hunters Video í Danmörku og má m.a. nefna að þarna eru glæsilegar myndir um veiðar í Póllandi , Afríku og víðar í heiminum , frábærar myndir sem allir sannir veiðimenn verða að eiga.
|