Stangveiðideildin okkar í Veiðiflugunni er með frábært úrval og ættu stangveiðimenn að finna allt sem þá vantar eða girnist hjá okkur. Helstu merkin okkar í fluguveiðinni er kemur að stöngum er sænska gæðamerkið LOOP og er það stefna okkar að eiga alltaf heildar línuna á lager í þessu frábæra merki ásamt því að eiga góða línu í Redington, Shimano og Vangen flugustöngum.
Fluguhjól og línur eru ávalt í miklu úrvali hjá Veiðiflugunni og má þar m.a. nefna að LOOP skotlínurnar sem slegið hafa svo rækilega í gegn á Íslandi og víðar eru ávallt til á lager hjá okkur. Fluguhjólin frá LOOP eru löngu landsfræg og eigum viða ávalt gott úrval af þeim ásamt að eiga fluguhjól frá Redington og Vangen.
Í kast og rennslistöngum er aðalmerkið okkar Shimano en það eru stangir sem bjóða upp á frábært úrval í gæðum og verðum og má þar nefna að við eigum stangir í öllum verðflokkum frá 3,500 kr upp í 30,000 kr. Jafnframt erum við með mjög mikið úrval af kasthjólum frá Shimano á verðum frá 3,490 kr upp í 19,900 kr og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi hvort sem það eru byrjendur eða lengra komnir í veiðinni.
Ávalt er fyrirliggjandi mjög gott úrval af veiðivörum fyrir sjóstangveiðina svo sem stangir , hjól , línur , pilkar og annað sem nauðsynlegt er í sjóstangveiðina.
Í Veiðiflugunni er ávallt fyrirliggjandi stórglæsilegt úrval af flugum í lax og silungsveiði, spúnum, flugutaumum og taumaefni frá MAXXIMA og LOOP ásamt öllu því nauðsynlegasta sem þarf í stangveiðina eins og t.d. miklu úrvali af polaroid veiðigleraugum, vöðlum, vöðlujökkum, vöðluskóm, veiðiflugum, veiðitöskum, hnífum, barnasettum og flestu öðru sem nauðsynlegt er í veiðina. Yfir sumartíman eigum við makríl og maðk.
Kynntu þér úrvalið og verðin, það mun koma þér verulega á óvart því við leggjum metnað okkar í hjarta búðarinnar.
Í veiðiflugunni færðu ávalt mikið úrval af hnífum hvort sem er vasahnífum , dólkum í stang eða skotveiðina eða allhliða fjölnotatæki eins og Leatherman sem hefur sannað sig fyrir gæði og áreiðanleika í gengum tíðina.
Við eigum ávalt glæsilegt úrval af flugum fyrir lax og silung og má þar meðal annars nefna að við eigum heildar línuna af flugum frá Krafla .is kynntu þér úrvalið , gæðin og verðin þau gerast ekki betri.
|